Kennsla

Lærðu að vinna með Model á eigin hraða.

Hér finnurðu stutt kennslumyndbönd sem sýna helstu aðgerðirnar: að búa til síðu, bæta við efni, vinna með AI, stilla hönnun, tengja lén og gera síðuna sýnilegri í leit.

Mikilvægt áður en þú byrjar

Fyrsta útgáfan þarf ekki að vera lokaútlitið.

Ef þú ert ekki strax ánægð/ur með útlitið sem AI býr til skaltu prófa að gera fleiri útgáfur í upphafsflæðinu. Þegar þú finnur hönnun sem er nálægt því sem þú vilt geturðu unnið áfram með hana: breytt litum, leturvali, myndum, köflum og texta beint í ritlinum.

Fyrsta skrefið

Byrjaðu á því að búa til vefsíðuna með AI.

Þetta er sama grunnmyndbandið og á forsíðunni og sýnir upphafsflæðið: hvernig þú lýsir fyrirtækinu, lætur AI smíða vefinn og ferð svo áfram inn í ritilinn.

Hvernig á að búa til vefsíðu með AI builder

Byrjaðu hér. Myndbandið sýnir hvernig þú lýsir fyrirtækinu og lætur Model smíða fyrstu útgáfu af vefsíðunni með AI builder.

14 kennslumyndbönd

Veldu það sem þú vilt læra næst.

Myndböndin eru flokkuð eftir verkefnum svo þú getir annaðhvort farið í gegnum þau í röð eða hoppað beint í það sem þú ert að vinna með hverju sinni.

Byrjaðu hér

Fyrstu skrefin í Model

Þegar síðan er komin inn í ritilinn er gott að byrja á grunnatriðunum: stilla útlit og skilja hvernig þú ferð á milli síðna.

Hvernig á að búa til nýja síðu í kerfinu

Sýnir hvernig þú bætir við nýrri undirsíðu í núverandi vef, til dæmis „Um okkur“, „Þjónusta“ eða aðra upplýsingasíðu.

Vinna með hönnun, letur og liti

Sýnir hvernig þú stillir heildarútlit síðunnar, prófar liti, letur og hönnun án þess að byrja upp á nýtt.

Almenn vinna með síður

Hvernig þú flakkar á milli síðna, velur rétta síðu og gerir breytingar á þeim hluta vefsins sem þú ert að vinna í.

Efni og uppsetning

Breyttu texta, myndum og svæðum

Þessi myndbönd sýna daglegu vinnuna í ritlinum: bæta við köflum, laga texta og skipta út eða búa til myndir.

Hvernig á að bæta við svæði

Bættu við nýjum köflum eins og þjónustu, myndasafni, FAQ, verðskrá, formi eða CTA og raðaðu síðunni upp eins og þú vilt.

Almenn vinna með texta

Breyttu texta beint á síðunni, lagaðu fyrirsagnir og notaðu AI þegar þú vilt stytta, lengja eða fínpússa orðalagið.

Vinna með myndir

Hvernig þú skiptir um myndir, hleður inn úr tölvunni, notar AI-myndir og skrifar eigin prompt þegar þú vilt ná ákveðnu myndefni.

Haus og valmyndir

Settu upp leiðarkerfið á vefnum

Valmyndin í hausnum ræður miklu um hversu auðvelt er að rata um síðuna. Hér sérðu hvernig þú setur inn lógó og raðar síðum í valmynd.

Hvernig á að setja inn logo

Settu merki fyrirtækisins í hausinn og láttu það passa við heildarútlit síðunnar.

Hvernig á að bæta við síðu í valmynd í haus

Bættu síðu við aðalvalmyndina svo gestir finni hana strax efst á vefnum.

Hvernig á að bæta við niðurfallandi valmynd í haus

Notaðu dropdown-valmynd þegar þú vilt hópa saman margar undirsíður, til dæmis þjónustur eða vöruflokka.

AI, SEO og rekstur

Láttu kerfið hjálpa þér áfram

Þegar grunnurinn er kominn getur Model hjálpað með AI-breytingar, eyðublöð, leitarvélabestun og lénstengingu.

AI aðstoðarmaðurinn

Biddu Model um breytingar á mannamáli, fáðu hugmyndir og flýttu fyrir vinnu sem annars tæki marga smelli.

Vinna með eyðublöð

Settu upp form, skildu hvernig fyrirspurnir berast og hvernig þau hjálpa gestum að hafa samband.

Sjálfvirk leitarvélabestun

Hvernig SEO-hluti Model hjálpar með titla, lýsingar og tæknileg atriði sem skipta máli fyrir leit og AI-leit.

Hvernig á að tengja eigið lén

Sýnir hvernig þú tengir eigið lén við síðuna þegar þú ert tilbúin/n að fara faglega í loftið.

Þarftu meiri aðstoð?

Við hjálpum þér að komast áfram.

Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að, vantar aðstoð við ákveðna stillingu eða vilt fá ráð um hvernig best sé að setja síðuna upp, þá er einfalt að hafa samband. Við hjálpum þér að komast áfram.